Innlent

Tillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu felld

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Frá Alþingi í dag. Mynd/ GVA.
Frá Alþingi í dag. Mynd/ GVA.
Tillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave samningana var felld á Alþingi í dag með 33 atkvæðum gegn 30. Allir þingmenn stjórnarandstöðunnar, sem greiddu atkvæði, studdu tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu. Það gerðu þau Ásmundur Einar Daðason og Lilja Mósesdóttir, þingmenn VG, einnig.

Aðrir þingmenn úr röðum Samfylkingarinnar og VG greiddu hins vegar atkvæði gegn tillögunni. Tvær breytingatillögur um þjóðaratkvæðagreiðslu voru lagðar fram og báðar felldar með sama atkvæðamun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×