Segir það sérkennilegt að Gunnar gagnrýni 20. janúar 2011 07:00 Hafsteinn Karlsson.
Hafsteinn Karlsson, forseti bæjarstjórnar Kópavogs, hafnar gagnrýni Gunnars I. Birgissonar, bæjarfulltrúa og fyrrverandi bæjarstjóra, vegna veislu sem bæjarfulltrúar og nokkrir yfirmenn hjá bænum ásamt mökum sátu fyrir jól. „Það er kannski dálítið sérkennilegt að gera athugasemdir við svona eftir að hafa eytt gríðarlega þegar hann var við völd. Margt af því var ekki nauðsynlegt," segir Hafsteinn. Veislan var í menningarmiðstöðinni Molanum þann 21. desember - en ekki á Þorláksmessu eins og kom fram í fundargerð bæjarráðs og í Fréttablaðinu í gær. Hafsteinn segir kvöldverðinn hafa verið haldinn í litlum sal eftir að bæjarstjórnin afgreiddi fjárhagsáætlun næsta árs. Ákveðið hafi verið að bæjarfulltrúar myndu greiða fimm þúsund krónur fyrir sig og einnig fyrir maka sem mættu. Kostnaðurinn á mann hafi verið 6.363 krónur á mann og bæjarsjóður greitt mismuninn. Auk bæjarfulltrúanna voru fjórir starfsmenn í kvöldverðinum. Það voru bæjarlögmaður, fjármálastjóri, deildarstjóri menningarmála og deildarstjóri íþrótta- og tómstundamála og þrír makar þeirra. Bæjarsjóður greiddi allan veislukostnaðinn vegna þessa hóps. Gunnar gagnýndi að veislan skyldi haldin á sama tíma og jólafgjafir til starfsmenn væru skornar niður. „Það er verið að segja upp fólki og við vildum heldur halda einu starfi en að gefa öllum einhverja jólagjöf," útskýrir Hafsteinn sem hafnar því að komið hafi verið illa fram við aðra starfsmenn bæjarins en þá sem sátu veisluna í Molanum. Á flestum vinnustöðum geri menn sér dagamun í desember og stofnanirnar sjái um það sjálfar. „Það var margt grand þegar Gunnar var bæjarstjóri og það kostaði sitt. Við erum kannski að borga brúsann fyrir það núna," segir Hafsteinn. Forseti bæjarstjórnar upplýsir að áður hafi ofast verið hangikjöt á borðum í bæjarfulltrúaveislunni. „En í fyrra og hittiðfyrra ákváðum að hafa eitthvað ódýrara og vorum með létt hlaðborð með pinnamat og kjúklingarétti. Og í fyrra ákváðum við að borga fyrir þetta sjálfir bæjarfulltrúarnir og gerðum það eins núna. Þannig að bæjarfulltrúarnir hafa borgað sjálfir frá því Gunnar hætti sem bæjarstjóri." gar@frettabladid.is
Mest lesið Halla Hrund sótti ekki um nýja forstjórastöðu Innlent Fastur á leigumarkaði með verðlaust hús í Grindavík Innlent Verkfræðingar segja vald SA „óeðlilega mikið“ Innlent Fundu ferðamennina um hálf eitt í nótt Innlent Gena Rowlands er látin Erlent Leggur til að hjólhýsabyggðin verði við Rauðavatn eða í Gufunesi Innlent Allt með kyrrum kjörum þrátt fyrir reyk og ljóstýru Innlent Sagðir hafa lagt á ráðin um skemmdarverkin á Nord Stream í ölæði Erlent Fjögurra daga gamlir tvíburarnir fórust á meðan faðirinn brá sér frá Erlent Rannsaka innbrot og mögulega vatnsmengun á herstöð í Þýskalandi Erlent Fleiri fréttir „Ekki sniðugt að vera með fólk sofandi þarna inni“ Flytur út frá foreldrum sínum þökk sé hundaheppni Beðið eftir gosi, orlofsgreiðslur og ósáttir verkfræðingar Fjórir berjast um embætti umboðsmanns Alþingis Fundu erfðabreytileika sem stórauka áhættu á Parkinsons „Týpísk pólitík að tefja málið“ Afhentu bæjarstjóra undirskriftalista vegna Coda Terminal Leggur til að hjólhýsabyggðin verði við Rauðavatn eða í Gufunesi Verkfræðingar segja vald SA „óeðlilega mikið“ Fastur á leigumarkaði með verðlaust hús í Grindavík Halla Hrund sótti ekki um nýja forstjórastöðu Fundu ferðamennina um hálf eitt í nótt Ekið heim eftir „smá uppsteyt“ í miðborginni Allt með kyrrum kjörum þrátt fyrir reyk og ljóstýru Gaukarnir gista og fá snyrtingu Leita að göngumanni í Kerlingarfjöllum Óttast um velferð íbúa og höfðar til skynsemi þeirra Tryggja þurfi að vindorkan haldist í höndum þjóðarinnar Bótagreiðslur til Íslendinga almennt hærri Á annað hundrað kvenna bíða eftir minni brjóstum Setti hraðamet í heiðurssundi fyrir syni Eddu Bjarkar Ósammála um hvort árekstur hefði orðið Gripin með óhrein peningabúnt í Leifsstöð Stíga annað stórt skref að virkjun við Búrfell Óvenjulegur grafreitur reistur á Seltjarnarnesi Eyddu sprengju úr seinni heimsstyrjöldinni í Hlíðarfjalli Halldór Bragason lést í eldsvoðanum Enginn vindmyllugarður án bættra vega Orsök veikindanna enn á huldu Gísla Pálma refsað fyrir akstur undir áhrifum Sjá meira