Fór þriggja kílómetra lengri leið til Úteyjar 11. ágúst 2011 04:00 Christian Hatlo sat meðal annarra fyrir svörum á blaðamannafundi lögreglunnar í gær. fréttablaðið/ap
Lögreglan í Noregi hefur vísað á bug fréttum þess efnis að hægt hefði verið að komast frá Ósló í Útey á mun styttri tíma þegar hryðjuverk voru framin á stöðunum tveimur. Ýmsir miðlar í Noregi hafa birt fréttir um málið undanfarið. Norska ríkisútvarpið sagði á þriðjudag að lögregla hefði farið þriggja kílómetra lengri leið til Úteyjar en hægt hefði verið að fara. Þá greindi TV2 sjónvarpsstöðin frá því að lögreglan hefði ekki vitað að þyrla hafi verið til staðar í Ósló og hefði getað flutt lögreglumenn þangað á nokkrum mínútum. Á blaðamannafundi í gær sagði lögreglan að þyrlan sem um ræddi hafi verið á forræði spítala, og í viðbragðsstöðu til að flytja sjúklinga á milli spítala vegna sprengjuárásarinnar í Ósló. Lögreglan hafi ekki vitað af henni, og jafnvel þó svo hefði verið hefði tekið tíma að fá leyfi til að nota hana. Jafnvel þó að vitað hefði verið af þyrlunni hefði verið valin sú leið að keyra að eyjunni. Greint var frá því að hryðjuverkamaðurinn Anders Behring Breivik hafi verið yfirheyrður á ný. Hann hafi verið samvinnuþýður við lögreglu og sagt frá ýmsu. Meðal annars er sagt að hann hafi kviðið fyrir því að framkvæma árásirnar, og að fyrstu morðin sem hann framdi í Útey hafi verið honum erfið.- þeb
Hryðjuverk í Útey Noregur Mest lesið Líf ólíklega í hættu en byggð gæti gjöreyðilagst Innlent „Þetta eru atburðir sem við höfum aldrei séð áður“ Innlent Svava Lydia komin í leitirnar Innlent Halla gerði hlé vegna veikinda veislugests Innlent Afsökunarbeiðni til Ólafar ekki í kortunum Innlent Reyndu að sprengja upp hraðbanka sem stendur allt af sér Innlent Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Erlent Segir afnám samsköttunar svik við kjósendur Innlent Kvikugangur frá Krýsuvík gæti náð inn í Heiðmörk Innlent Viðurkenndi brot gegn barnungri systur en sýknaður Innlent Fleiri fréttir Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Rannsaka góðgerðarsamtök sem Harrý stofnaði Grunaður um að verða mæðgum að bana Tóku mið af viðskiptahalla en ekki tollum „Kokkurinn“ í Bandidos látinn Draga sig úr Alþjóðasakamáladómstólnum fyrir heimsókn Netanjahú Sjá meira