Erlent

Leikkona hélt dauða mömmu sinnar leyndum og hirti ellilífeyrinn

Mynd/AFP
Hazel Maddock, bresk leikkona þekkt fyrir leik í sápuóperum, hefur viðurkennt að hún lét vera að tilkynna um andlát móður sinnar og hirti þess í stað ellilífeyri hennar.

Upp komst um málið í ágúst á síðasta ári þegar lík móður leikkonunnar fannst sex mánuðum eftir andlát hennar. Ekki lítur út fyrir að dauða móðurinnar hafi borið að með saknæmum hætti en hún var þá 95 ára. Maddock á yfir höfði sér fangelsisvist þegar dómur í málinu verður kveðinn upp eftir hálfan mánuð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×