Erlent

Tracy Morgan biðst afsökunar á ummælum um homma og lesbíur

Mynd/AFP
30 Rock stjarnan Tracy Morgan hefur beðist afsökunar Á ummælum sem hann viðhafði nýverið um samkynhneigða. Ummælin féllu þegar hann hélt uppistand í Nashville en þá sagði sjónvarpsstjarnan samkynheigð vera val og að hommar og lesbíur ættu að hætta að vera svona miklir aumingjar.

Ummælin vöktu hörð viðbrögð, meðal annnars hjá Tinu Fey, samstarfsmanni Morgan og aðaleikkonuninni í sjónvarpsþáttunum 30 Rock. Morgan hefur nú beðist afsökunar á öllu saman og sagt að væri sonur hans hommi myndi hann elska hann jafn mikið og ef hann væri fyrir konur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×