Erlent

Jarðgöng hrundu á Gaza

Frá Gaza-ströndinni
Frá Gaza-ströndinni
Fjórir féllu og fjórir eru særðir eftir að jarðgöng hrundu nálægt bænum Rafah á Gaza-ströndinni í dag.

Göngin voru á landamærum Egyptalands og Gaza-strandarinnar og voru notuð til að smygla varningi framhjá ísraelskum landamæravörðum. Ísraelski herinn hefur gert árásir á jarðgöng á svæðinu undanfarin ár en talsmaður varnarmálaráðherra Ísraels segir að herinn beri ekki ábyrgð á slysinu í göngunum í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×