Erlent

Tólf létust í tilræði í Hvíta-Rússlandi

Tólf eru látnir.
Tólf eru látnir.
Heilbrigðisráðherra Hvíta-Rússlands segir að tólf hafi látist í sprengjuárásinni í neðanjarðarlestarstöð í Minsk í gær.

Alls slösuðust 126 , þar af 22 alvarlega. Að sögn yfirlæknis á spítalanum sem sinnir fórnarlömbunum, misstu margir útlimi í árásinni.

Stöðin er í aðeins um hundrað metra fjarlægð frá forsetahöll Alexanders Lukashenkos. Tilræðismaðurinn, eða mennirnir eru ófundnir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×