Innlent

Fannst heill á húfi

Maður sem 45 björgunarsveitarmenn leituðu að í Hítardal frá hádegi fannst nú síðdegis heill á húfi. Maðurinn var í gönguferð ásamt félaga sínum en varð viðskila við hann um hádegisbilið.

Maðurinn gat látið vita af sér í gegnum gemsa og upplýst að hann væri staddur við bæjarrústir. Mikil þoka var á svæðinu þegar maðurinn týndist.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×