Innlent

Bæjarsjóður betur staddur með kísilverið

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Árni Sigfússon bæjarstjóri.
Árni Sigfússon bæjarstjóri.

„Það er full ástæða til að hafa jákvæðar væntingar út af þessum ágætu samningum," segir Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ. Samningar um kísilver í Helguvík voru undirritaðir í dag og má gera ráð fyrir að þeir hafi jákvæð áhrif á uppbyggingu atvinnulífs á Suðurnesjum.

„Þetta er 17 milljarða fjárfestingaverkefni. Þetta þýðir miklar tekjur til sveitarfélagsins og íbúa á svæðinu á rekstratímanum og þannig eru þetta bæði mikilvægir samningar fyrir Helguvík sem hefur lagt í miklar fjárfestingar og er nú að fá þær til baka," segir Árni. Hann bendir á að samningar um kísilver muni skila auknum tekjum í bæjarsjóð, með auknum hafnargjöldum, það eru lóðargjöldum og fasteignagjöldum. „Þetta er allt veruleg búbót og svo eru líklegast 200 störf á framkvæmdatíma," segir Árni. Betra sé þó að telja störfin eftir að uppbygging hefst í byrjun maí.

Árni segist telja að samningarnir í dag séu fyrstu vísbendingarnar um að stór verkefni á Reykjanesi séu að komast í gang. Það sé fagnaðarefni enda hafi kostað fjármagn að skapa aðstöðu fyrir þessi verkefni og svo hafi þurft að berjast mikið fyrir þeim.

Árni vonast til að hægt sé að ganga lengra. „Auðvitað ætlumst við til að álversverkefnið gangi eftir. Það er mun stærra verkefni og hefur mun víðtækari áhrif. Það teygir sig alveg inn á höfuðborgarsvæðið. Við getum gert ráð fyrir að helmingur starfsmanna komi af höfuðborgarsvæðinu. Svo minni ég á gagnaverið og minni á einkasjúkrahús," segir Árni. Þetta séu nýjar greinar sem verið sé að skapa grundvöll fyrir. Uppbygging Keilis hafi líka skipt miklu máli.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×