Lífið

Jóhanna Björg tekur við Nýju útliti Karls Berndsen

Jóhanna Björg Christensen fjallar um tísku og heilbrigðan lífsstíl í þáttunum Nýtt útlit á Skjá einum er hún tekur við keflinu af Karli Berndsen. Fréttablaðið/hag
Jóhanna Björg Christensen fjallar um tísku og heilbrigðan lífsstíl í þáttunum Nýtt útlit á Skjá einum er hún tekur við keflinu af Karli Berndsen. Fréttablaðið/hag
Jóhanna Björg Christensen sér um þáttinn Nýtt útlit næsta haust á Skjá einum. Jóhanna Björg er að taka sín fyrstu skref á skjánum en hún kvíðir því ekki að þurfa að feta í fótspor Karls Berndsen þó að hún viðurkenni að það sé enginn eins og hann.

„Ég hafði aldrei séð fyrir mér að fara að stýra sjónvarpsþætti en það má svo sem hugsa að þetta sé rökrétt framhald á því sem ég hef verið að gera,“ segir Jóhanna Björg Christensen, ritstjóri vefritsins Nude magazine, en hún birtist áhorfendum á skjánum í haust sem nýr umsjónarmaður þáttarins Nýtt útlit á Skjá einum.

Jóhanna Björg fetar þar með í fótspor hárgreiðslumannsins og útlitsráðgjafans Karls Berndsen sem séð hefur um þættina undanfarin ár. Hann hefur flutt sig yfir á Stöð 2 og byrjar með nýjan þátt næsta vetur, eins og Fréttablaðið hefur greint frá. Aðspurð hvort það sé ekki erfitt að fylla í hans fótspor svarar hún: „Það er enginn eins og Kalli og ég ætla ekki einu sinni að reyna það. Í rauninni er það bara nafnið sem er eins á þáttunum en ég ætla að koma með nýjar áherslur og yngja þáttinn aðeins upp.“

Jóhönnu Björgu til halds og traust í þáttunum verður Hafdís Inga Hinriksdóttir förðunarfræðingur og hárgreiðslumaður, en þær stöllur leita að rétta aðilanum í það starf.

Þegar þátturinn var í umsjón Karls Berndsen var megináhersla lögð á útlitsbreytingar og að gefa einum áhorfanda nýtt útlit. Jóhanna Björg ætlar að breyta því. „Við verðum líka með útlitsbreytingar en ætlum að leggja meiri áherslu á ferlið en sjálfa breytinguna. Þátturinn verður fjölbreyttur og hraður tískuþáttur,“ segir Jóhanna Björg, sem heldur ritstjórastarfi sínu áfram hjá Nude Magazine.

Það var Skjár einn sem hafði samband við Jóhönnu og tók hún sér smá tíma til að íhuga tilboðið. „Ég hugsaði þetta vel og vandlega en svo gat ég einfaldlega ekki hafnað þessu tækifæri.“

Jóhanna Björg viðurkennir að það sér auðvitað stressandi að taka sín fyrstu kref á skjánum en hún stefnir á að hefja tökur strax í næstu viku. „Ég er að alveg að fara út fyrir þægindarammann en það er hollt. Ég vona bara að við fáum góðar móttökur þegar þátturinn fer í loftið í haust.“

alfrun@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.