Erlent

Schwarzenegger hyggur á endurkomu

Mynd/AFP
Arnold Schwarzenegger hefur látið lítið fyrir sér fara að undanförnu eftir að uppvíst var að hann eignaðist barn með einni af starfskonum á heimili sínu fyrir um áratug. Í kjölfarið sagði eiginkonan, Maria Shriver, skilið við hann.

Nú berast fréttir af því að leikarinn og fyrrverandi ríkisstjórinn fyrrverandi hyggi á endurkomu og mun hann hafa fundað með stjórnendum stærstu kvikmyndaverana í Hollywood. Með þessu hyggst Schwarzenegger bæta ímynd sína en ekki þarf hann að hafa peningaáhyggjur eftir farsælan feril.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×