Innlent

Betur fór en á horfðist í upphafi

Þorlákshöfn. Pilturinn var fluttur með sjúkrabíl til Reykjavíkur.
Þorlákshöfn. Pilturinn var fluttur með sjúkrabíl til Reykjavíkur.
Líðan barnsins sem fékk sjóðandi vatn yfir sig í gær er eftir atvikum, samkvæmt upplýsingum frá sérfræðingi á Landsspítalanum. Fjórtán mánaða gömul stúlka fékk sjóðandi vatn yfir sig í Þorlákshöfn í gær þegar foreldrarnir litu í örstutta stund frá potti sem var verið að sjóða í vatn.

Hún var flutt til Reykjavíkur með sjúkrabíl og dvelur nú á Landspítalanum. Samkvæmt upplýsingum frá sérfræðingi á spítalanum fór betur en á horfðist í upphafi en stúlkan er töluvert brennd á efri hluta líkamans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×