Fótbolti

Pedro með bæði mörk Barcelona í 2-1 sigri á Levante

Elvar Geir Magnússon skrifar

Barcelona vann í kvöld 2-1 sigur á Levante á heimavelli sínum. Pedro Rodriguez skoraði bæði mörk liðsins eftir sendingar frá Dani Alves. Staðan í hálfleik var markalaus en Börsungar brutu ísinn í upphafi seinni hálfleiks.

Liðið komst síðan tveimur mörkum yfir áður en Christian Stuani minnkaði muninn fyrir Levante. Gestirnir reyndu allt til að knýja fram jafntefli og fór markvörður þeirra meðal annars í sóknina í lokin.

Barcelona var án nokkura mjög sterkra leikmanna í leiknum. Liðið er nú með fimm stiga forystu á Real Madrid en Madridíngar eiga leik inni. Levante er í sextánda sæti, tveimur stigum fyrir ofan fallsæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×