Lífið

Hreindís Ylva heldur tónleika

Leikkonan Hreindís Ylva Garðarsdóttir, sem lék eftirminnilega Stellu í kvikmyndinni Órói, heldur útgáfutónleika í tilefni útkomu disksins Á góðri stund, ásamt hljómsveit í Salnum í Kópavogi næsta sunnudag, 4. september.

Hún ætlar að heiðra söngkonuna Erlu Þorsteinsdóttur sem söng á árunum 1956 til 1960 vinsæl dægurlög eins og Þrek og tár, Draumur fangans, Litli tónlistarmaðurinn og Bergmálsharpan.

Sjá nánar á Facebook, Salurinn.is og hér má kaupa miða (midi.is).






Fleiri fréttir

Sjá meira


×