Innlent

Herjólfur siglir ekki vegna veðurs

Vegna veðurs og ölduhæðar á milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar falla ferðir Herjólfs klukkan 08:30 frá Eyjum og 10:00 frá Landeyjahöfn niður.

Þeir farþegar sem eiga miða í þessar ferðir færast sjálfkrafa á næstu ferðir sem farnar verða klukkan 11:30 frá Vestmannaeyjum og 13:00 frá Landeyjahöfn. Þó er útlitið með næstu ferðir ekki gott og því biðjum við farþega Herjólfs að fylgjast með.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×