Innlent

Meira flutt inn af kjöti en áður - mest alifuglakjöt

Samkvæmt yfirliti Bændasamtakanna hefur innflutningur á kjöti aukist milli ára. Á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2010 nam innflutningurinn 613 tonnum en á sama tímabili árið 2009 nam innflutningurinn 589 tonnum. Innflutningur á kjöti til landsins hefur því aukist um 3,9% á milli samanburðartímabila.

Á tímabilinu hefur lang mest verið flutt inn af alífuglakjöti eða 357 tonn og er þar að ræða rúmlega 20 prósent aukningu milli ára.

Næstmest er flutt inn af svínakjöti eða 123 tonn sem er um 18 prósenta aukning. Innflutningur á nautakjöti dregst hins vegar saman um 3,2 prósent milli ára niður í 104 tonn.

Þetta kemur fram á vef Landssambands kúabænda.

Rétt er að geta þess að í öllum tilfellum er um hreint kjöt að ræða, þ.e. ekki innflutningur á beinum. Borið saman við tölur um framleiðslu hér á landi má því ætla að 613 tonn svari til rúmlega 1.000 tonna framleiðslu hér á landi, þ.e. miðað við 60% kjöthlutfall að jafnaði á allar kjöttegundir. Fyrstu 11 mánuði ársins nam sala á innlendri kjötframleiðslu 22.121 tonnum og að viðbættum ætluðum innflutningi (með beinum) alls 23.142 tonnum. Áætla má út frá þessum tölum að hlutfall innflutts kjöts hér á markaði nemi um 4,4%.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×