Innlent

Líkamsárásarkæra í Vestmannaeyjum

Frá Vestmannaeyjum
Frá Vestmannaeyjum
Stelpa kærði líkamsárás í Vestmannaeyjum í dag eftir að hún var slegin hnefahöggi í nótt, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Vestmannaeyjum. Atvikið átti sér stað fyrir utan heimahús bænum en ágreiningur var á milli aðila og stelpan reyndi að skakka leikinn. Þá var hún slegin hnefahöggi af karlmanni.

Dagurinn hefur annars verið rólegur hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum en nóttin sem leið var töluvert erilsöm. Unglingur slasaðist í andliti eftir að flugeldur sprakk í andliti hans. Augun sluppu þó alveg. Þá hafði lögreglan afskipti af nokkrum slagsmálum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×