Erlent

Rýmdu tvo skóla í Óðinsvéum vegna sprengjuhótunnar

Tveir framhaldsskólar í Óðinsvéum á Fjóni í Danmörku voru rýmdir í morgun í kjölfar sprengjuhótunnar.

Að sögn lögreglunnar fékk hún símtal frá enskumælandi manni snemma í morgun sem hótaði því að sprengja báða skólanna. Jafnframt sagði hann að taka ætti þessa hótun alvarlega.

Fyrir utan að rýma skólanna hefur lögreglan lokað stóru svæði í kringum þá. Sem stendur er leit í gangi að hugsanlegum sprengjum í skólunum og eru sérþjálfaðir hundar meðal annars notaðir í leitinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×