Innlent

Vill sitja áfram

Vilmundur Jósefsson
Vilmundur Jósefsson
Vilmundur Jósefsson hefur ákveðið að gefa áfram kost á sér sem formaður Samtaka atvinnulífsins (SA). Formaður verður kosinn með rafrænum hætti meðal aðildarfyrirtækja í aðdraganda aðalfundar samtakanna sem fram fer 7. apríl.

Vilmundur, sem er viðskiptafræðingur að mennt, hefur verið formaður SA frá árinu 2009, en hann var áður varaformaður í þrjú ár. Hann hefur setið í stjórn SA um árabil. Vilmundur var formaður Samtaka iðnaðarins árin 2000 til 2006 og var stjórnarmaður í samtökunum frá 1994 til 2000.- sh



Fleiri fréttir

Sjá meira


×