Erlent

Hitti kærustuna óvænt á blindu stefnumóti

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Það kom aldrei til þess að fólkið gæti fengið sér snæðing saman. Mynd/ Getty.
Það kom aldrei til þess að fólkið gæti fengið sér snæðing saman. Mynd/ Getty.
Kanadískur maður sem hafði skipulagt blint stefnumót með konu á Netinu fékk óvænt áfall - þegar konan reyndist vera kærastan hans.

Konan mætti til stefnumóts á kaffihúsi í Barrie í Ontario í Kanada, en eftir það lá leiðin niðurávið. Fyrstu viðbrögð konunnar voru að hella kaffi í andlit mannsins - hún sló hann síðan utanundir, eftir því sem kemur fram í dagblaðinu Barrie Advance

Lögreglumaður á frívakt, sem staddur var fyrir tilviljun á kaffihúsinu, handtók konuna. Dómur mun úrskurða hvort hún verði látin laus gegn tryggingagjaldi. 

Hvorki konan né maðurinn hafa viljað tjá sig um atvikið.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×