Erlent

Giffords fylgist með síðasta geimskoti Endeavor

Bandaríska geimskutlan Endeavor heldur af stað í sína síðustu geimferð í dag frá Flórída. Ferðinni er heitið í alþjóðlegu geimstöðina sem er á sporbaug um jörðu og tekur leiðangurinn fjórtán daga. Þegar skutlan snýr aftur verður henni komið fyrir á safni í Los Angeles.

Leiðangursstjóri er Mark Kelly, en hann er eiginmaður bandarísku þingkonunnar Gabrielle Giffords sem slasaðist alvarlega þegar hún var skotin í höfuðið af óðum byssumanni fyrir nokkrum mánuðum. Hún hefur nú náð sér nægilega vel af sárum sínum til þess að vera viðstödd geimskotið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×