„Ég klæði mig í ullina og fer í rómantískan göngutúr um miðbæinn," segir Védís Hervör Árnadóttir tónlistarkona, sem eignaðist sitt fyrsta barn, Árna Stefán Bergmann, 14. júlí síðastliðinn, aðspurð út í undirbúning jólanna.
„Aðalhefðin hefur þó verið prófatörn, tónlistargjörningar og handavinna. Ég er meira skapandi á þessum árstíma en venjulega."

„Ég mála, sauma út og prjóna jólagjafir og ég er nú þegar byrjuð á jólagjöfunum fyrir þessi jól," segir hún.
„Smákökubakstur með mömmu og systur minni er að festa sig í sessi, og svo hefðbundnir endurfundir innan stórfjölskyldunnar sem tvístrast út um allt yfir árið."
Hvað kemur þér í jólaskap? „Hreindýraundirföt mannsins míns," svarar Védís brosandi áður en kvatt er.-elly@365.is