Ráðherra vildi loka án tafar 10. febrúar 2011 07:00 Íbúafundur verður haldinn í dag en ákveðið hefur verið að hætta sorpbrennslu á skólatíma.mynd/sigurður k. hjálmarsson
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra beindi þeirri ósk til þriggja sveitarstjórna í gær að hætta eða draga úr sorpbrennslu þar til niðurstöður frekari mengunarmælinga liggja fyrir. Á Kirkjubæjarklaustri hefur verið hætt að brenna sorp á skólatíma, eins og krafa hefur verið um frá íbúum. Tilmælin voru send sveitarstjórnunum eftir að ráðherra hafði fengið staðfest frá Umhverfisstofnun að ekki væri lagaheimild til að stöðva starfsemina fyrirvaralaust, eða þangað til að sóttvarnalæknir hefur lokið við heilsufarsrannsókn á íbúum sveitarfélaganna. Er það álit Umhverfisstofnunar að ekki sé um bráðahættu að ræða og því ekki hægt að láta til skyndilokunar koma. „En það er rétt. Mín óskastaða hefði verið að sorpbrennslunum hefði verið lokað strax,“ segir Svandís, sem ætlar að hefja könnun á því hvernig setja megi lagaákvæði sem heimili stjórnvöldum að grípa til skyndiráðstafana ef óvissa er um mengun og áhrif hennar á lífríki. Umhverfisstofnun, Matvælastofnun og sóttvarnalæknir munu á næstunni efna til borgarafunda með íbúum sveitarfélaga í nágrenni við sorpbrennslustöðvar og verður fyrsti fundurinn haldinn í dag á Kirkjubæjarklaustri. Síðar verður fundað á Ísafirði og í Vestmannaeyjum. Eygló Kristjánsdóttur, sveitarstjóra í Skaftárhreppi, hafði ekki borist bréf ráðherra þegar Fréttablaðið ræddi við hana í gær. Hins vegar hefur sveitarfélagið ákveðið að hætta að brenna sorp á skólatíma, en skýr krafa þar um hefur komið frá hópi íbúa. Sorpbrennslan á staðnum og grunnskólinn standa vegg í vegg, eins og fram hefur komið. Matvælastofnun hefur fellt svæði í nágrenni sorpbrennslu inn í aðskotaefnaáætlun stofnunarinnar fyrir árið 2011 sem nær til búfjárafurða.svavar@frettabladid.is
Mest lesið Milla hætt hjá Willum Innlent Lést í eldsvoðanum við Amtmannsstíg Innlent „Það er öllum brögðum beitt til að koma vörunum sem víðast“ Innlent Svipaður hlátur á öllum upptökunum Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir bruna á Amtmannsstíg Innlent Gera sér ekki mat úr lekanum úr framboði Trump Erlent Hafa ekki í hyggju að halda Kúrsk Erlent Skiptu um síma og símkort eins og nærbuxur til að hylja slóð sína Innlent Mikill og dökkur reykur í íbúðinni Innlent Tugir þúsunda létust af völdum hita í Evrópu Erlent Fleiri fréttir Lést í eldsvoðanum við Amtmannsstíg Milla hætt hjá Willum Fimm milljarðar í húsnæðisúrræði fyrir hælisleitendur Lögreglan leitar að stolnum Volvo Svipaður hlátur á öllum upptökunum Viðskiptaráð biður ráðuneytið um niðurstöður námsmats Telja áform um uppbyggingu vindmyllugarða verulegt áhyggjuefni Skiptu um síma og símkort eins og nærbuxur til að hylja slóð sína Starfsmenn Veðurstofunnar í biðstöðu og kvikusöfnun heldur áfram Sex sóttu um embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar Bruni í miðbænum og Landvernd slæst við vindmyllur Mikill og dökkur reykur í íbúðinni Einn fluttur á slysadeild eftir bruna á Amtmannsstíg „Það er öllum brögðum beitt til að koma vörunum sem víðast“ Þurfi að sýna skynsemi við uppbyggingu vindorkuvera Fluttur á sjúkrahús eftir að bát hvolfdi Ekki óyggjandi sönnun fyrir meintu dýraníði blóðbónda að mati MAST Hringveginum lokað við Borgarnes vegna elds í vörubíl Malarvagn kramdi bílstjórahús flutningabíls Ferðamenn í báðum bifreiðum Landsvirkjun skrefi nær því að reisa fyrsta vindorkuverið Rannsaka hugsanleg veikindi af völdum E.coli Makaði tómatsósu á útidyrahurð nágranna sinna Þvert nei á línuna kom saksóknara í opna skjöldu Gelt á Heiðu Eiríks í miðborginni Hringveginum lokað við Skeiðarársand vegna alvarlegs bílslyss Féll af hesti og var án meðvitundar Hafnar því að hafa reynt að drepa mann og dreifa dópi Maðurinn í Taílandi sagður Íri ekki Íslendingur Stjórnvöld sofi á verðinum meðan Svens sæki í börnin Sjá meira