Innlent

Sinueldur á Smiðjuvegi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Sinueldur kviknaði við Smiðjuveg fyrir stundu og hefur slökkviliðið verið kallað á staðinn. Ekki er vitað um neitt tjón af völdum eldsins en hann er farinn að nálgast bíla sem hann gæti mögulega læst sig í.

Nokkuð hefur verið um sinubruna á landinu að undanförnu. Til dæmis voru tveir sinubrunar fyrir helgi. Annar á Selfossi og hinn við Syðri Brú í Grímsnesi. Í báðum tilvikum kviknaði í út frá flugeldi. Slökkviliðsmenn frá Brunavörnum Árnessýslu voru kallaðir út til að slökkva eldana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×