Ferðafólk frá Singapúr aldrei lent í öðru eins óveðri 7. janúar 2011 11:55 Mynd úr safni
Sem stendur er afar mikið að gera hjá björgunarsveitum á Suðunesjum og veður þar kolvitlaust. Á Austurgötu er þak að fara af húsi í heilu lagi og mun Hafnargatan væntanlega lokast innan nokkurra mínútna. Ægisgatan hefur verið lokuð í morgun vegna vatns sem hefur safnast þar. Í Hveragerði losnuðu þakplötur af hesthúsi og tunnur fuku, á Blönduósi og Akureyri aðstoðuðu björgunarsveitir heilbrigðisstarfsfólk í og úr vinnu og bæjarbúar á Akureyri aðstoðaðir í ófærð innanbæjar.Ferðafólk frá Singapúr situr fast í bílaleigubíl Einnig hafa sveitir á Hofsósi, Akranesi, Árborg, Húsavík og Hvammstanga sinnt ýmsum verkefnum. Þessa stundina eru Húnar frá Hvammstanga að sækja ferðafólk frá Singapúr sem situr fast í bílaleigubíl við Efra Vatnshorn. Hefur það aldrei lent í öðru eins veðri. Þetta er haft eftir upplýsingafulltrúa Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að enn sé mjög slæmt veður um mest allt land. Það er óveður undir Eyjafjöllum, við Markarfljót og Ingólfsfjall, á Hellisheiði og í Þrengslum.Hættuminna að aka eftir Austur-Landeyjavegi Fólki sem er á leiðinni í og úr Herjólfi er ráðlagt að aka eftir Austur-Landeyja vegi að Bakkaflugvelli og þaðan í Landeyjahöfn. Gríðarhvasst er á Landeyjahafnarvegi og mikið sandfok og hætta á skemmdum á bifreiðum. Talið er hættuminna að aka eftir Austur-Landeyjavegi og að Landeyjahöfn. Óveður er á Kjalarnesi, við Akrafjall og eins á sunnanverðu Snæfellsnesi en stórhríð í ofenverðum Borgarfirði og í Dölum. Það eru hálkublettir á Kleifaheiði, Mikladal og Hálfdáni. Á Vestfjörðum er þó víðast hvar beðið með mokstur vegna veðurs. Á Norðurlandi má heita að allsstaðar sé stórhríð og ekkert ferðaveður. Þar er beðið átekta með mokstur. Á Austurlandi er óveður á Vopnafjarðarheiði og stórhríð á Jökuldal, Fjarðarheiði og Skriðdal. Það er snjóþekja og skafrenningur á Fagradal en þungfært á Oddsskarði. - Mokstur er hafinn á Vatnsskarði eystra. Á Suðausturlandi eru vegir auðir vestan Hafnar en það er óveður við Lómagnúp og á Mýrdalssandi.
Mest lesið „Mér að mæta“ ef krossar yrðu fjarlægðir Innlent Hlé vegna gagna frá ChatGPT Innlent Óttast að tapa bestu flúðum landsins í virkjun Innlent Sérsveitin kölluð til í Urriðaholti Innlent Katrín gerir upp framboðið og safnar heitum Innlent Segir verkfræðinga á villigötum Innlent Þriggja daga heitavatnsleysi í næstu viku Innlent Trump gerði lítið úr æðstu heiðursorðu bandarískra hermanna Erlent „Viðbrögð lögreglu óásættanleg“ eftir líkamsárás á Þjóðhátíð Innlent Rauðu örvarnar leika listir sínar á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Pétur Jökull hljóti að vera einstaklega óheppinn „Algjörlega mistekist að stýra efnahag landsins“ Íbúafundur um uppbyggingu sem ógni flúðunum skilyrði Leita ökumanns sem ók á stúlku og stakk af Meiri tíðindi að stjórnin hafi lifað svo lengi Pottur á eldavél talinn upptök brunans á Amtmannsstíg Láglaunakonur heilsuveilli en konur með hærri laun Krefst að lágmarki sex og hálfs árs fangelsis yfir Pétri Jökli Ójöfnuður meðal kvenna og ríkisstjórnin gagnrýnd Gagnrýnir tvískinnung borgaryfirvalda með orlofsgreiðslur Dags Þriggja daga heitavatnsleysi í næstu viku Tæknileg vandræði hjá Háskóla Íslands Hlé vegna gagna frá ChatGPT Sérsveitin kölluð til í Urriðaholti „Mér að mæta“ ef krossar yrðu fjarlægðir Segir verkfræðinga á villigötum Landsvirkjun gerir 725 milljón króna tilboð í Toppstöðina Skjálfti í Bárðarbunguöskjunni Óttast að tapa bestu flúðum landsins í virkjun Rauðu örvarnar leika listir sínar á Íslandi Apabóla geti komið til landsins en muni ekki verða útbreidd Katrín gerir upp framboðið og safnar heitum „Viðbrögð lögreglu óásættanleg“ eftir líkamsárás á Þjóðhátíð Munaðarlaus álftarungi ætti að spjara sig Gæti misst fótinn eftir að starfsmannarútan ók yfir hana Áttar sig ekki á ákalli formanns VG Ósammála ráðherrar, brotthvarf tónleikastaða og einmana ungi Neitaði að borga þegar á áfangastað var komið Fordæmalausar skemmdir unnar á Sprengisandi Helga Vala til Lögfræðistofu Reykjavíkur Sjá meira