Innlent

Gæsluvarðhald yfir meintum skotmönnum rennur út á morgun

Einn mannanna sem var úrskurðaður í gæsluvarðhald grunaður um að hafa skotið á heimili í Háaleitishverfinu.
Einn mannanna sem var úrskurðaður í gæsluvarðhald grunaður um að hafa skotið á heimili í Háaleitishverfinu.

Gæsluvarðhald yfir fjórum karlmönnum, sem eru grunaðir um að hafa skotið á hurð heimilis í Háaleitishverfinu á aðfangadag, rennur út á morgun, 4. janúar.

Mennirnir voru handteknir á aðfangadegi þar sem fjórmenningarnir komu að húsi í fyrrnefndu hverfi og virtust þeir eiga eitthvað vantalað við húsráðandann.

Atburðarásin liggur ekki fyrir samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni en þó er ljóst að skotið var á húsið því á vettvangi mátti sjá að hleypt hafði verið af haglabyssu. Ummerki þess voru greinileg á útidyrahurð.

Engan sakaði og voru árásarmennirnir handteknir þegar þeir reyndu að komast undan. Þá var lagt hald á haglabyssu sem fannst á vettvangi. Fjórmenningarnir, sem eru á þrítugs- og fertugsaldri, hafa allir áður komið við sögu hjá lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×