Guðmundur Steingrímsson mun stofna nýjan stjórnmálaflokk JHH og FI skrifar 22. ágúst 2011 15:15 Guðmundur Steingrímsson ætlar að stofna nýjan stjórnmálaflokk.
Guðmundur Steingrímsson, þingmaður Framsóknarflokksins, mun tilkynna um stofnun nýs stjórnmálaflokks á morgun, samkvæmt heimildum Vísis. Heimildir herma að Guðmundur sé óánægður með ýmislegt í stefnu Framsóknarflokksins og hafi verið það um skeið. Meðal annars einarða afstöðu Framsóknarflokksins gegn Evrópusambandinu. Vísir hefur gert ítrekaðar tilraunir til þess að ná tali af Guðmundi, án árangurs. Í samtali við DV.is staðfesti hann þó að tíðinda væri að vænta. Aðrir þingmenn flokksins, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Höskuldur Þórhallsson og Eygló Harðardóttir hafa heldur ekki svarað. Sigurður Ingi Jóhannsson, varaformaður þingflokksins, sagði hins vegar í samtali við Vísi að hann hefði ekkert heyrt um mögulegt brotthvarf Guðmundar úr flokknum. „Ég veit ekki annað en að Framsóknarflokkurinn hafi það nokkuð gott og hafi verið að sækja í sig veðrið á öllum stöðum," segir Sigurður Ingi Jóhannsson í samtali við Vísi. Gunnar Bragi Sveinsson, formaður þingflokksins, og Siv Friðleifsdóttir kannast heldur ekki við málið. Samkvæmt heimildum Vísis hafa staðið yfir umræður um stofnun þessa flokks í nokkurn tíma. Úrsögn þriggja frammámanna úr flokknum nýlega mun vera tengd þessum umræðum.
Tengdar fréttir Ætlar að tilkynna ákvörðun sína á morgun "Ég er búinn að ákveða að segja á morgun hvað ég hafði hugsað mér að gera og vil aðeins hafa stjórn á þeirri atburðarrás,“ segir Guðmundur Steingrímsson, þingmaður Framsóknarflokksins, í samtali við Vísi. Hann vill því hvorki játa því né neita hvort hann muni stofna nýjan stjórnmálaflokk eins og greint hefur verið frá í dag. 22. ágúst 2011 15:51 Mest lesið Jökulhlaup hafið úr Mýrdalsjökli og hringveginum lokað Innlent Skökk gangstéttarhella eyðilagði líf Ragnheiðar Innlent Full ástæða til að vara foreldra við Innlent Merki Coolbet fjarlægt eftir símtal fréttamanns Innlent Skipuleggjendur Druslugöngunnar þurftu fljótlega að loka fyrir innsendingar Innlent Fullkomið gagnsæi mikilvægt, greiði fyrir greiða ekki við hæfi Innlent Með veiðistangir en neituðu því að hafa verið að veiða Innlent Útskýrir ummælin um barnlausar kattarkonur Erlent Biðst velvirðingar á myndbirtingunni Innlent Málið óheppilegt og mjög klaufalegt Innlent Fleiri fréttir Jökulhlaup hafið úr Mýrdalsjökli og hringveginum lokað Jökulhlaup virðist hafið úr Mýrdalsjökli Fullkomið gagnsæi mikilvægt, greiði fyrir greiða ekki við hæfi Bílakaup verðandi forseta og Druslugangan Lögreglan búin að finna manninn sem beraði sig Skipuleggjendur Druslugöngunnar þurftu fljótlega að loka fyrir innsendingar Skökk gangstéttarhella eyðilagði líf Ragnheiðar Merki Coolbet fjarlægt eftir símtal fréttamanns Bálhýsi á skógræktarsvæði á Borg í Grímsnesi Biðst velvirðingar á myndbirtingunni Með veiðistangir en neituðu því að hafa verið að veiða Full ástæða til að vara foreldra við Málið óheppilegt og mjög klaufalegt Fíkniefni á samfélagsmiðlum og bílakaup verðandi forseta Ekki verið ætlun þeirra að gera bílakaupin opinber Forstjóri Brimborgar á athyglisverðum gestalista Höllu Kæra Byko vegna límmiða úr sögunni Ármúlinn verði vel nothæfur leikskóli eftir tvær vikur Hnífamaðurinn í Lundi áfram bak við lás og slá „Hann meiddi mig ekki mikið“ Umboðsmaður barna krefst svara um nýtt námsmat Sala á fíkniefnum fari fram fyrir opnum tjöldum Ferðamennirnir lausir úr haldi eftir líkamsárás Sala fíkniefna fyrir opnum tjöldum og stemmning á Húsavík Ný líkön sýna umfang hraunsins Allt í háaloft þegar faðirinn sneri til baka úr veikindaleyfi Óbreyttir bændur í Mýrdalnum hafi ekki efni á malbiki Ragnar Þór kennir Pawel eitt og annað í kennslufræðum Segir málið hið sérkennilegasta og krefst svara Boðar laugardagsbongó Sjá meira
Ætlar að tilkynna ákvörðun sína á morgun "Ég er búinn að ákveða að segja á morgun hvað ég hafði hugsað mér að gera og vil aðeins hafa stjórn á þeirri atburðarrás,“ segir Guðmundur Steingrímsson, þingmaður Framsóknarflokksins, í samtali við Vísi. Hann vill því hvorki játa því né neita hvort hann muni stofna nýjan stjórnmálaflokk eins og greint hefur verið frá í dag. 22. ágúst 2011 15:51