Erlent

Tekur stökk í skoðanakönnun

Jens Stoltenberg forsætisráðherra og flokkssystkin hans hafa aukið við fylgi sitt eftir ódæði Anders Breivik.NordicPhotos/AFP
Jens Stoltenberg forsætisráðherra og flokkssystkin hans hafa aukið við fylgi sitt eftir ódæði Anders Breivik.NordicPhotos/AFP
Verkamannaflokkurinn bætir við sig talsverðu fylgi í nýrri skoðanakönnun sem birt var í norskum fjölmiðlum í gær. Spurt var um hvaða flokk fólk myndi kjósa ef gengið yrði til þingkosninga nú.

Verkamannaflokkurinn fengi þannig 35,4% fylgi, sem er stökk um 7,4% frá könnun sem gerð var fyrir mánuði. Sú könnun var gerð fyrir fjöldamorðin í Ósló og Útey, en flokkurinn hefur síðan notið samúðarfylgis í könnunum. Norðmenn ganga brátt til sveitarstjórnarkosninga en ekki er sjálfgefið að útkoman þar verði í samræmi við þessa könnun.- þj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×