Körfubolti

Helena með 29 stig í stórsigri Englanna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir. Mynd/Heimasíða Good Angels Kosice
Helena Sverrisdóttir átti sinn besta leik til þessa með Good Angels Kosice þegar liðið vann 115-53 sigur á MBK Región Roznava í slóvakísku deildinni í körfubolta um helgina.

Helena skoraði 29 stig á 30 mínútum í þessum góða sigri en hún hitti úr 13 af 17 skotum sínum í leiknum. Helena var einnig með 4 stolna bolta og 2 fráköst.

Þetta er það langmesta sem Helena hefur skoraði í einum leik í slóvakísku deildinni en hún skoraði 17 stig í þriðju umferðinni sem fram fór 8. október.

Helena hefur nú skorað 11,1 stig að meðatali á 21,8 mínútum í fyrstu níu deildarleikjum sínum en Good Angels Kosice er með fullt hús á toppi deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×