Erlent

Mansal í Kína að aukast

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni.

Mansal færist í aukanna í Kína samkvæmt þarlendum fjölmiðlum en glæpasamtök eru farin að nýta sér neyð og fátækt kínverskra kvenna í meira mæli. Þannig eru kínverska konur úr fátækum héruðum landsins neyddar í vændi í Evrópu, suðaustur Asíu og Afríku.

Konurnar eru sannfærðar af glæpasamtökum um að þær séu að fara í nám eða í vel launaðar vinnur. Á dögunum var fimmtán kínverskum konum bjargað úr kynlífsþrælkun í Kongó í Afríku. Tveir karlmenn frá kína eru í haldi vegna málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×