Lífið

Fá poppara til að kokka og syngja

Í hátíðarskapi Samstarfsfólkið á Nýlendugötu blæs til skemmtilegrar tónleikaraðar. Frá vinstri eru Ottó Magnússon, Sigga Heimis, Helga Guðrún Vilmundardóttir, Árný Þórarinsdóttir og Guðmundur Þór Gunnarsson.Fréttablaðið/Anton
Í hátíðarskapi Samstarfsfólkið á Nýlendugötu blæs til skemmtilegrar tónleikaraðar. Frá vinstri eru Ottó Magnússon, Sigga Heimis, Helga Guðrún Vilmundardóttir, Árný Þórarinsdóttir og Guðmundur Þór Gunnarsson.Fréttablaðið/Anton
„Þetta verður á léttu nótunum, lifandi og skemmtilegt,“ segir Guðmundur Þór Gunnarsson, annar eigenda Forréttabarsins, sem var opnaður um miðjan október.

Veitingastaðurinn deilir húsnæði með hönnunarmiðstöðinni Netagerðinni á Nýlendugötu, og eigendurnir ákváðu nýlega að taka höndum saman og blása til tónleikaraðar á aðventunni. „Okkur langaði að gera eitthvað skemmtilegt saman fyrst við búum þarna saman en erum með svona ólíka starfsemi.“

Fyrstu tónleikarnir eru í kvöld klukkan 20.30 og mun Felix Bergsson ríða á vaðið ásamt Stefáni Magnússyni. Á hverjum miðvikudegi fram að áramótum munu svo ólíkir tónlistarmenn eiga sviðið á Forréttabarnum og leika fyrir gesti staðarins. Það verður þó ekki eina aðkoma listafólksins, sem mun einnig taka að sér að vera gestakokkar á staðnum og velja rétt dagsins.

Spurður hvort hann haldi að tónlistarhæfileikarnir tryggi nokkuð góða matreiðslukunnáttu, segir hann það mega liggja á milli hluta. „En þau þurfa nú að hafa einhverja lágmarksþekkingu á matargerð. Það verður allavega ekki boðið upp á bjór og pylsur,“ segir Guðmundur sem er spenntur fyrir samstarfinu. Auk Felix munu Jón Jónsson, Sóley og Jakob Smári Magnússon með Bassajól öll koma fram í hátíðarskapi.

Gengið er inn á Forréttabarinn í gegnum Netagerðina þar sem hönnuðir verslunarinnar munu hanna ný piparkökumót í tilefni aðventunnar og bjóða upp á léttar veitingar frá klukkan 19.30 í kvöld.

Forréttabarinn og Netagerðin hafa svo fullan hug á að halda samstarfinu áfram eftir áramót og nú þegar eru hafnar samningaviðræður við landsþekkta tónlistarmenn fyrir dagskrána eftir áramót að sögn Guðmundar.

„Ég hvet fólk til að fylgjast með okkur, þetta verður rosalega skemmtilegt.“ - bb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.