Forsetafrúin í sjónvarpið 7. janúar 2011 09:00 „
Dorrit er virkilega klár og skemmtileg kona sem hefur alltaf haft mikinn áhuga á hollum mat og heilbrigðum lífsstíl," segir Sólveig Eiríksdóttir, eða Solla eins og hún er gjarnan nefnd. Í dag hefjast tökur á nýrri þriggja þátta sjónvarpsþáttaröð sem Saga Film framleiðir fyrir Stöð 2. Solla verður aðalstjórnandi þáttarins en henni til halds og trausts er engin önnur en forsetafrúin, Dorrit Moussaieff. „Við verðum oftast saman á skjánum en ég verð líka stundum ein," segir Solla, himinlifandi með að hafa sjálfa Dorrit sér við hlið fyrir framan sjónvarpsvélarnar. Að sögn Sollu verða þær stöllur í Gnúpverjahreppi í dag og ætla að heimsækja þar Skaftholt, sem hún segir vera eitt flottasta lífræna býlið á landinu og þótt víðar væri leitað. „Það er sextíu eða sjötíu prósent sjálfbært og þau eru að gera alveg stórkostlega hluti þar," segir hún. Solla lýsir þáttunum sem blöndu af matreiðslu og fræðslu. Þær sæki bændur heim, skoði lífræna ræktun og kynni sér sjálfbærni. „Við ætlum að hitta fólk sem er að gera jákvæða og skemmtilega hluti og svo eldum við úr vörunum heima. Mig langar að sýna hvernig fólk getur nýtt sér hluti eins og þara og gera það á sérstakan hátt, eins og að setja þara í ís." Solla hlakkar augljóslega mikið til og efast ekki um að það verði mjög gaman hjá sér og forsetafrúnni. „Hvernig svo sem útkoman verður," bætir hún við og hlær. Leiðir Sollu og Dorritar lágu saman á athafnavikunni fyrir skemmstu þar sem forsetafrúin bar fram ljúffenga drykki úr smiðju Sollu. Sá viðburður vakti mikla athygli og óskipta gleði þeirra sem tóku þátt. Þær Dorrit og Solla ætla einnig að heimsækja leikskóla og grunnskóla. „Mig langar að sýna að krökkum þykir hollt fæði oft miklu betra en óhollt og að matreiðsla á hollum mat sé ekki jafn flókin og fólk vill stundum meina," segir Solla.Í nóvember fjallaði Ísland í dag um æfingar Dorritar og Sollu í eldhúsinu og má sjá það innslag með því að smella á tengilinn með fréttinni. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið „Mér að mæta“ ef krossar yrðu fjarlægðir Innlent Hlé vegna gagna frá ChatGPT Innlent Óttast að tapa bestu flúðum landsins í virkjun Innlent Sérsveitin kölluð til í Urriðaholti Innlent Katrín gerir upp framboðið og safnar heitum Innlent Segir verkfræðinga á villigötum Innlent Þriggja daga heitavatnsleysi í næstu viku Innlent Trump gerði lítið úr æðstu heiðursorðu bandarískra hermanna Erlent „Viðbrögð lögreglu óásættanleg“ eftir líkamsárás á Þjóðhátíð Innlent Rauðu örvarnar leika listir sínar á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Íbúafundur um uppbyggingu sem ógni flúðunum skilyrði Leita ökumanns sem ók á stúlku og stakk af Meiri tíðindi að stjórnin hafi lifað svo lengi Pottur á eldavél talinn upptök brunans á Amtmannsstíg Láglaunakonur heilsuveilli en konur með hærri laun Krefst að lágmarki sex og hálfs árs fangelsis yfir Pétri Jökli Ójöfnuður meðal kvenna og ríkisstjórnin gagnrýnd Gagnrýnir tvískinnung borgaryfirvalda með orlofsgreiðslur Dags Þriggja daga heitavatnsleysi í næstu viku Tæknileg vandræði hjá Háskóla Íslands Hlé vegna gagna frá ChatGPT Sérsveitin kölluð til í Urriðaholti „Mér að mæta“ ef krossar yrðu fjarlægðir Segir verkfræðinga á villigötum Landsvirkjun gerir 725 milljón króna tilboð í Toppstöðina Skjálfti í Bárðarbunguöskjunni Óttast að tapa bestu flúðum landsins í virkjun Rauðu örvarnar leika listir sínar á Íslandi Apabóla geti komið til landsins en muni ekki verða útbreidd Katrín gerir upp framboðið og safnar heitum „Viðbrögð lögreglu óásættanleg“ eftir líkamsárás á Þjóðhátíð Munaðarlaus álftarungi ætti að spjara sig Gæti misst fótinn eftir að starfsmannarútan ók yfir hana Áttar sig ekki á ákalli formanns VG Ósammála ráðherrar, brotthvarf tónleikastaða og einmana ungi Neitaði að borga þegar á áfangastað var komið Fordæmalausar skemmdir unnar á Sprengisandi Helga Vala til Lögfræðistofu Reykjavíkur Ósátt við skógrækt í mólendi fyrir utan Húsavík Sektaður fyrir að nota rafólar á hunda Sjá meira