Innlent

Saksóknari Alþingis opnar heimasíðu - mál Geirs þingfest á þriðjudaginn

Geir H. Haarde á landsfundi Sjálfstæðisflokksins.
Geir H. Haarde á landsfundi Sjálfstæðisflokksins.
Saksóknari Alþingis hefur opnað sérstakan vef helgaðan málsókn þingsins gegn Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra Sjálfstæðisflokksins. Vefurinn heyrir undir opinbert vefsvæði ríkisins þar sem meðal annars má finna vefi ráðherra og opinberra stofnanna.

Á vefnum má finna öll gögn um málið sem hafa verið gerð opinber, auk þess sem fram kemur á vefnum að mál Geirs verður þingfest fyrir Landsdómi á þriðjudaginn í næstu viku.

Það var Morgunblaðið sem vakti fyrst athygli á vefnum í morgun. Þar segir Sigríður Friðjónsdóttir, saksóknari Alþingis, að þar sem almenningur hafi eðlilega mikinn áhuga á þessum blessuðu hrunsmálum öllum, sé rétt að veita upplýsingar um það hvað þarna er á ferðinni.

Hægt er að nálgast vef embættisins hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×