Innlent

Tveir á slysadeild eftir þriggja bíla árekstur

Tveir slösuðust og voru fluttir á slysadeild eftir þriggja bíla árekstur í Hafnarfirði laust fyrir hádegið í dag. Slysið varð á gatnamótum Reykjavíkurvegar og Hjallabrautar. Tildrög slyssins liggja eru óljós.

Líðan þeirra sem voru fluttir á slysadeild liggur ekki fyrir en þeir voru farþegar í sama bílnum. Annar aðilinn slasaðist meira en hinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×