Erlent

Nóbelsverðlaun í eðlisfræði afhent í dag

Sprengistjörnur eru öflugustu fyrirbæri alheimsins.
Sprengistjörnur eru öflugustu fyrirbæri alheimsins. mynd/AFP
Þeir Saul Perlmutter, Lawrence Berkeley og Brian Schmidt hlutu Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði í dag. Verðlaunin fá þeir fyrir rannsóknir sínar á fjarlægum sprengistjörnum.

Á síðustu árum hafa vísindamenn komist að því að alheimurinn sé sífellt stækkandi og það er almennt álit manna að alheimurinn hægði á sér í þessari stækkun.

Með rannsóknum sínum hafa þremenningarnir komist að því að þetta er rangt. Alheimurinn er alls ekki að hægja á sér, heldur eykur hann hraðann sífellt.

Sprengistjörnur eru öflugustu fyrirbæri sem finnast í alheiminum. Þær myndast þegar hefðbundnar stjörnur klára eldsneyti sitt og falla í kjölfarið saman.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×