Ólíðandi að vera sett undir hatt glæpamanns 8. janúar 2011 12:07 Birgitta Jónsdóttir þingmaður
Birgitta Jónsdóttir þingmaður Hreyfingarinnar býst við að bandarísk stjórnvöld hafi óskað eftir gögnum um hana af fleiri vefsíðum en Twitter, en þeirri síðu hefur verið stefnt til að afhenda öll gögn um hana. Bandaríska dómsmálaráðuneytið hefur stefnt Twitter samskipasíðunni til að afhenda öll gögn af Twittersíðum Birgittu Jónsdóttur þingmanns Hreyfingarinnar, Julian Assange forráðamanns Wikileaks og Bradley Mannings, hermannsins sem lak um 250 þúsund trúnaðarskjölum Bandaríkjahers til Wikileaks. Stefnan var lögð fram í héraðsdómi í Virginiu. BBC segir að samkvæmt dómsúrskurði telji saksóknarar í Bandaríkjunum sig hafa sannanir sem skjóti stoðum undir þann grun að Twitter búi yfir gögnum varðandi yfirstandandi rannsókn á sakamáli. Twitter hefur tilkynnt Birgittu að hún hafi tíu daga til andmæla, áður en gögnin verði afhent. Hún greindi frá málinu á Twittersíðu sinni og hefur færsla hennar farið sem eldur í sinu um heimsbyggðina í fréttum erlendra. „Mér finnst þetta að sjálfsögðu ólíðandi, upprunalega átti ég ekki að vita af þessu og það átti að afhenda þetta leynilega í desember. Þessi dómstóll er eflaust að finna leiðir til að fá Julian framseldann til Bandaríkjanna," segir Birgitta. Birgitta óttast ekki að hún sé á leið í fangelsi í Bandaríkjunum en ætlar að krefja bandarísk stjórnvöld um skýringar og hún hefur fengið bandaríska lögfræðinga í lið mér sér til að berjast gegn því að gögnin verði afhent. En Birgitta aðstoðaði Wikileaks á sínum tíma við að koma myndbandsupptöku á vefinn þar sem bandarískir hermenn sjást skjóta á óbreytta borgara í Bagdad í Írak úr þyrlu. „Mér finnst ólíðandi að ég sé sett undir hatt glæpamanns fyrir að vinna að þessu vídeói og starfa sem sjálfboðaliði fyrir Wikileaks. Ef Bandaríkin þurfa upplýsingar um mig, gætu þau haft samband við mig beint, sendiherrann hefði til dæmis getað talað við mig beint."
Mest lesið „Mér að mæta“ ef krossar yrðu fjarlægðir Innlent Hlé vegna gagna frá ChatGPT Innlent Óttast að tapa bestu flúðum landsins í virkjun Innlent Sérsveitin kölluð til í Urriðaholti Innlent Katrín gerir upp framboðið og safnar heitum Innlent Trump gerði lítið úr æðstu heiðursorðu bandarískra hermanna Erlent Þriggja daga heitavatnsleysi í næstu viku Innlent Segir verkfræðinga á villigötum Innlent „Viðbrögð lögreglu óásættanleg“ eftir líkamsárás á Þjóðhátíð Innlent Rauðu örvarnar leika listir sínar á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Pétur Jökull hljóti að vera einstaklega óheppinn „Algjörlega mistekist að stýra efnahag landsins“ Íbúafundur um uppbyggingu sem ógni flúðunum skilyrði Leita ökumanns sem ók á stúlku og stakk af Meiri tíðindi að stjórnin hafi lifað svo lengi Pottur á eldavél talinn upptök brunans á Amtmannsstíg Láglaunakonur heilsuveilli en konur með hærri laun Krefst að lágmarki sex og hálfs árs fangelsis yfir Pétri Jökli Ójöfnuður meðal kvenna og ríkisstjórnin gagnrýnd Gagnrýnir tvískinnung borgaryfirvalda með orlofsgreiðslur Dags Þriggja daga heitavatnsleysi í næstu viku Tæknileg vandræði hjá Háskóla Íslands Hlé vegna gagna frá ChatGPT Sérsveitin kölluð til í Urriðaholti „Mér að mæta“ ef krossar yrðu fjarlægðir Segir verkfræðinga á villigötum Landsvirkjun gerir 725 milljón króna tilboð í Toppstöðina Skjálfti í Bárðarbunguöskjunni Óttast að tapa bestu flúðum landsins í virkjun Rauðu örvarnar leika listir sínar á Íslandi Apabóla geti komið til landsins en muni ekki verða útbreidd Katrín gerir upp framboðið og safnar heitum „Viðbrögð lögreglu óásættanleg“ eftir líkamsárás á Þjóðhátíð Munaðarlaus álftarungi ætti að spjara sig Gæti misst fótinn eftir að starfsmannarútan ók yfir hana Áttar sig ekki á ákalli formanns VG Ósammála ráðherrar, brotthvarf tónleikastaða og einmana ungi Neitaði að borga þegar á áfangastað var komið Fordæmalausar skemmdir unnar á Sprengisandi Helga Vala til Lögfræðistofu Reykjavíkur Sjá meira