Innlent

Níu líkamsárásir tilkynntar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Miðborg Reykjavíkur. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Miðborg Reykjavíkur. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Níu líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglunnar um helgina. Fjórar þeirra áttu sér stað í miðborginni en hinar annarsstaðar á höfuðborgarsvæðinu.

Tvær árásanna voru mjög alvarlegar, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni. Í annarri þeirra var karl á fertugsaldri laminn illa á nýársdagsmorgun en í hinni var karl á svipuðu reki sleginn í andlitið aðfaranótt sunnudags. Þeir voru báðir fluttir illa haldnir á sjúkrahús.

Árásarmennirnir voru handteknir en þeir eru báðir á þrítugsaldri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×