Innlent

Bleikir pennar stofna nýjan vef

Heiða Þórðardóttir og Steinunn Fjóla Jónsdóttir, ritstýrur Spegill.is
Heiða Þórðardóttir og Steinunn Fjóla Jónsdóttir, ritstýrur Spegill.is
Stöllurnar Heiða Þórðardóttir og Steinunn Fjóla Jónsdóttir, sem báðar eru pistlahöfundar vefritsins Bleikt.is, virðast hafa ákveðið að breiða út vængi sína og fljúga úr bleika hreiðrinu, en þær koma til með að opna nýjan vef þann 1. ágúst næstkomandi, sem bera mun nafnið Spegillinn.

Spegillinn er ætlaður konum, 25 ára og eldri, og mun að sögn stofnenda spegla afþreyingu og áhugamál kvenna, lífsstíl þeirra og stundum losta. Þá segja ritstýrurnar að ritlist verði einnig gert hátt undir höfði á nýja vefnum.

Heiða og Steina segjast hafa unun af skrifum, en þær gefa báðar út sínar fyrstu skáldsögur á þessu ári. Skáldsaga Heiðu, Allra síðasta eintakið, kom út í vor en skáldsaga Steinu, Málverk í hvítum ramma, kemur út í október.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×