Erlent

Bentley ekið á Ferrari, Porche, Aston Martin og Benz

Árekstur sem aðeins gat orðið í Monte Carlo kostaði skemmdir á bílum af gerðunum Bentley, Ferrari, Porche, Aston Martin og Mercedes Benz.

Í frétt um málið í Daily Mail segir að ljóshærð kona ók Bentley Azure bíl sinum á hina fjóra á götunni við Place du Casino. Eftir áreksturinn safnaðist múgur og margmenni að staðnum en ökumenn bílanna sátu fastir í þeim þar til lögreglan kom og greiddi úr flækjunni.

Áætlað er að það kosti um 8 milljónir króna að gera við skemmdirnar á bílunum en samanlagt verðmæti þeirra er hátt í annað hundrað milljónir kr.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×