Erlent

Danskir gíslar eygja frelsi

Mynd/AFP
Fimm mánaða vist danskrar fjölskyldu í haldi sómalskra sjóræningja gæti lokið innan skamms samkvæmt fregnum í þarlendum fjölmiðlum. Fjölskyldan var tekin í gíslingu í febrúar síðastliðnum þegar þau sigldu skútu sinni um Indlandshaf í átt að Rauðahafi.

Fréttir herma að samkomulag sé að nást um lausnargjald að upphæð fimm milljónir Bandaríkjadala, sem jafngildir 574 milljónum íslenskra króna.

- þj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×