Lífið

Hollenskar fyrirsætur með tískusýningu á Ingólfstorgi

Daphne Deckers er stödd hér á landi vegna þáttarins Holland´s Next Top Model.
Daphne Deckers er stödd hér á landi vegna þáttarins Holland´s Next Top Model. nordicphotos/Getty
hollenskir þátttakendur Sjö þátttakendur eru eftir í Holland´s Next Top Model.
„Ísland er mjög frábrugðið Hollandi. Það er áskorun að koma hingað,“ segir sjónvarpsframleiðandinn Barbara frá Hollandi. Hún verður stödd hér á landi fram á miðvikudag við upptökur á sjónvarpsþættinum Holland"s Next Top Model ásamt hópi Hollendinga.

Um er að ræða hollenska útgáfu af hinum vinsæla bandaríska þætti, America"s Next Top Model, sem ofurfyrirsætan Tyra Banks stjórnar. Sjö fyrirsætur eru eftir í hollenska þættinum en upphaflega sóttu um sex þúsund stúlkur til að fá að taka þátt. Stjórnandi er fyrirsætan fyrrverandi, Daphne Deckers. Hún lék í James Bond-myndinni Tomorrow Never Dies sem kom út 1997.

„Við erum vön því að fara á hlýja og sólríka staði og höfum meðal annars farið til Suður-Afríku og Mexíkó. Hugmyndin um að heimsækja Ísland kom upp nokkrum sinnum og á endanum ákváðum við að skella okkur hingað,“ segir Barbara en núna er verið að taka upp sjöttu þáttaröðina. „Við vorum mjög forvitin að sjá landslagið og íslensku náttúruna.“

Stúlkurnar hafa í nógu að snúast meðan á dvöl þeirra stendur. Í gærmorgun fóru þær í köfun, þar sem Deckers var með í för, og einnig heimsækja þær nettímaritið Nude Magazine, tískufyrirtækið Spaksmannsspjarir og Andreu Brabin hjá Eskimo Models. Ljósmyndarinn Baldur Kristjánsson ætlar að mynda þær, eins og Monitor greindi frá í fyrradag. Á sunnudaginn verður svo tískusýning á Ingólfstorgi milli kl. 15 og 18. Þar sýna stúlkurnar föt frá tískuhönnuðinum Steinunni Sigurðardóttur. „Við erum mjög stoltar að fá að vera í fötum frá henni,“ segir Barbara.

Tvö ár eru liðin síðan þátttakendur í fimmtu þáttaröð af Britain"s Next Top Model komu hingað til lands. Þá hittu þær einnig Andreu Brabin, sátu fyrir í Bláa lóninu og borðuðu þorramat í Fjörukránni í Hafnarfirði. Þá var hin íslenska Huggy Ragnarsson í dómnefndinni og sá hún einnig um að mynda stúlkurnar.

freyr@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×