Erlent

Skotárás í Svíþjóð

Stokkhólmur, höfuðborg Svíþjóðar.
Stokkhólmur, höfuðborg Svíþjóðar.
Einn maður lést og annar berst nú fyrir lífi sínu eftir skotárás í bænum Åkersberga í Svíþjóða en bærinn er rétt fyrir utan Stokkhólm.

Þrír menn eru sagðir hafa komið akandi á mótorhjólum inn í einbýlishúsahverfi í bænum og hafið skotárásina fyrirvaralaust.

Árásin átti sér stað um klukkan sex síðdegis en vitni segir við Aftonbladet að líklega hafi sjö til tíu skotum verið hleypt af. Í morgun hafði enginn verið handtekinn vegna málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×