Innlent

Útlendingar í vandræðum vegna veðurs

Þrír útlendingar lentu í vandræðum í afleitu veðri, þegar bíll þeirra fór út af veginum í Víkurskarði, skammt frá Akureyri upp úr miðnætti.

Lögreglan á Akureyri kom þeim til hjálpar og flutti þá til Akureyrar, en bíllinn var skilinn eftir enda engin skilyrði til að draga hann upp, vegna óveðurs. Fólkið sakaði ekki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×