Innlent

Davíð skrifar leiðara langt fram á ævikvöld ef heilsan leyfir

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins.
Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins. Mynd/GVA
Engin tímamörk eru á ráðningu Davíðs Oddssonar sem ritstjóra Morgunblaðsins og það er ekkert fararsnið á honum, segir Óskar Magnússon, útgefandi blaðsins.

Nokkur umræða hefur verið á veraldarvefnum að ráðning Davíðs Oddssonar annars tveggja ritstjóra Morgunblaðsins hafi verið tímabundin til tveggja ára og að hún renni út í haust. M.a hafði bloggarinn Gísli Baldvinsson haldið þessu fram að því er virðist án þess að styðjast við nokkrar heimildir.

Þá hafa einhverjir verið að kalla eftir því að Davíð snúi aftur í stjórnmálin, en á vefnum Amx.is, sem er vettvangur ákveðinna afla í Sjálfstæðisflokknum, var núverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, gagnrýndur en þar segir jafnframt „að mikill sjónarsviptir sé af Davíð í pólitíkinni því hann beri höfuð og herðar yfir aðra forystumenn þjóðarinnar á umliðnum árum og áratugum." Þessi greinarstúfur birtist eftir að ritstjórinn var heiðursgestur á árshátíð Heimdallar, félagi ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík. Davíð nýtur mikillar hylli meðal ungra sjálfstæðismanna og eftir árshátíðina birtust myndir á veraldarvefnum af ungliðunum rjóðum í kinnum með gamla foringjanum. Þótti hugsanleg endurkoma í stjórnmálin gefa sögusögnum um að ráðningartímabil í stóli ritstjóra liði senn undir lok, byr undir báða vængi, eða að minnsta kosti annan vænginn.

Engin tímamörk í samkomulagi við Árvakur

Óskar Magnússon, útgefandi Morgunblaðsins, segir alrangt að einhver tímamörk séu á ráðningu Davíðs. Það séu engin tímamörk í ráðningarsamningi við Davíð eða ritstjóra Morgunblaðsins yfirleitt. „Það er ekki einu sinni aldurshámark. Þannig að ef hann lifir lengi og honum heilsast vel þá getur þetta orðið mjög langt," segir Óskar.

Fréttastofan hefur heimildir fyrir því að ráðning Davíðs sé byggð á munnlegu samkomulagi hans og útgefandans. Óskar segir það hins vegar ekki rétt, báðir ritstjórarnir, Davíð og Haraldur Johannessen, séu með skriflega ráðningarsamninga.

En hvernig gengur reksturinn? „Hann gengur betur en margur heldur," segir Óskar en hann hefur sagt að reksturinn hafi verið eins og við mátti búast. Þess má þó geta að tap Árvakurs á árinu 2009 nam 1,3 milljörðum króna samkvæmt síðasta birta ársreikningi félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×