Brasilíumaðurinn Rubens Barrichello hjá Williams er reynslumesti Formúlu 1 ökumaðurinn og hann telur að mikið muni reyna á dekkin á Sepang brautinni um næstu helgi. Liðsfélagi Barrichello er Pastor Maldonado frá Venúsúela, sem ók í sína fyrsta Formúlu 1 móti í Ástralíu á dögunum.
„Malasíu er gott heima að sækja og ég nýt þess að keyra brautina (Sepang), sem reynir mikið á ökumenn vegna hita og raka", sagði Barrichello í fréttatilkynningu frá Williams.
„Mótið mun reyna mikið á dekkin og uppsetning bílsins verður mikilvæg og ég hlakka til að mæta þarna og keyra þessa ótrúlegu braut. Ég vonast til að standa mig vel og markmiðið er að ná í nokkur stig."
Maldonado átti erfitt uppdráttar í fyrsta móti ársins og er klár í slaginn í mótið í Malasíu. Bíll hans bilaði í mótinu samkvæmt frétt á autosport.com og en hann var fimmtánda sæti á ráslínu í fyrsta mótinu með Williams.
„Þrátt fyrir niðurstöðuna í Ástralíu, þá er ég með meira sjálfstraust gangvart bílnum og liðinu. Sepang er mjög tæknilegt braut, en ég keppti á henni 2009 í GP2 Asíu-mótinu og varð í öðru sæti. Ég held ég náí meira út úr bílnum, en það býr mikið í honum ef við leggjum hart að okkur", sagði Maldonado.
Barrichello: Hlakka til að keyra ótrúlega braut
