Erlent

Þerna Strauss-Khan í vondum málum

Óli Tynes skrifar
Dominiq Strauss-Khan
Dominiq Strauss-Khan
Þernan sem kærði Dominiq Strauss-Kahn fyrir nauðgun á yfir höfði sér ákæru vegna meinsæris. Þá er einnig mögulegt að hún verði gerð landræk frá Bandaríkjunum fyrir að ljúga í umsókn sinni um landvistarleyfi. Meðal annars sagði hún í umsókninni að sér hefði verið hópnauðgað, en hefur nú viðurkennt að það hafi aldrei gerst.

Konan sem er 32 ára gömul er frá Gíneu. Grunur leikur á að hún hafi tengsl inn í undirheima í Bandaríkjunum og hafi komið nærri eiturlyfjasölu og peningaþvætti. Strauss-Khan var leystur úr stofufangelsi fyrir helgina og hefur síðan sprangað milli veitingahúsa og listaverkasafna í New York ásamt eiginkonu sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×