Erlent

Pattstaða komin upp í Líbíu

Mynd/AP
Hersveitir hliðhollar Muammar Gaddafi, leiðtoga Líbíu, gerðu í dag innrás í borgina Misrata í vesturhluta landsins. Er borgin síðasta stóra borgin í höndum uppreisnarmanna í vesturhlutanum.

 

Flugárásir hersveita NATO á hersveitir Gaddafi hafa ekki þótt skila tilætluðum árangri en yfirmaður heraflans í Líbíu hefur óskað eftir fleiri orrustuflugvélum. Barack Obama Bandaríkjaforseti segir pattstöðu komna upp í landinu. - mþl




Fleiri fréttir

Sjá meira


×