Íslenski boltinn

Stjarnan vann Val í úrslitaleik Lengjubikarsins

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Stjörnustúlkur unnu góðan sigur á Val í kvöld.
Stjörnustúlkur unnu góðan sigur á Val í kvöld. Mynd/Anton
Stjarnan er Lengjubikarmeistari kvenna eftir sigur á Val í úrslitaleik keppninnar, 2-1. Úrslitin komu vissulega á óvart enda Val tvöfaldur meistari og spáð titlinum í ár.

Björk Gunnarsdóttir kom Val yfir í fyrri hálfleik en þær Kristin Edmonds og Ásgerður Stefanía Baldursdóttir skoruðu mörk Stjörnunnar í þeim síðari.

Keppni í Pepsi-deild kvenna hefst laugardaginn 14. maí en árlegur Meistaraleikur KSÍ fer fram á laugardaginn. Þar mætast Valur og Þór/KA.

Upplýsingar fengar frá Fótbolti.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×