Sérsveitarmenn tóku með sér mann úr húsi Osama 4. maí 2011 05:00 Talið er að Osama bin Laden hafi hafst við í afgirtu húsi í borginni Abbottabad í einhvern tíma. Pakistanskir hermenn hafa nú lokað húsinu af og halda fólki frá því. Fréttablaðið/AP
Pakistönsk stjórnvöld vissu ekki af árás á hús Osama bin Laden fyrr en hún var yfirstaðin. Bandarísk stjórnvöld hafa ekki ákveðið hvort þau ætla að birta mynd af Osama bin Laden föllnum. Bandarískir sérsveitarmenn sem réðust á hús hryðjuverkaleiðtogans Osama bin Laden í Pakistan á mánudag höfðu á brott með sér eina manneskju, mögulega son bin Ladens. Þetta upplýsti pakistanska leyniþjónustan í gær. Pakistönsk stjórnvöld gagnrýndu bandarísk yfirvöld harðlega vegna árásarinnar. Þau vissu ekki af henni fyrr en hún var afstaðin. Talsmaður bandarískra stjórnvalda sagði að fáir hefðu fengið að vita af árásinni áður en hún fór fram. Tryggja hefði þurft algera leynd. Þyrlur sérsveitarmannanna flugu inn í pakistanska lofthelgi frá Afganistan án þess að þeirra yrði vart með því að þræða fjalladali og fljúga rétt yfir jörðu. Barack Obama Bandaríkjaforseti fylgdist með árásinni í beinni útsendingu. Þegar sérsveitarmennirnir tilkynntu að Osama bin Laden hefði verið skotinn sagði Obama: „Við náðum honum.“ Pakistanska leyniþjónustan var ekki jafn vel með á nótunum og baðst í gær afsökunar á því að hafa ekki sjálf fundið bin Laden. Húsið þar sem hann var veginn er í borginni Abbottabad, sem er um 100 kílómetra frá höfuðborginni Islamabad. Húsið er aðeins um 800 metra frá stórum herskóla. Bandarísk stjórnvöld hafa enn ekki gert upp við sig hvort þau ætli að gera myndir af líki Osama, eða útför hans á hafi úti, opinberar. Talsmaður Bandaríkjaforseta sagði enga ákvörðun hafa verið tekna um hvort það yrði gert. Talsmaður pakistönsku leyniþjónustunnar upplýsti í gær að sautján eða átján manns hefðu verið í húsinu þegar árás sérsveitarmannanna hófst. Auk bin Ladens féll Khalid sonur hans í árásinni, ásamt tveimur öðrum nánum samverkamönnum bin Laden. Þá féll ein kona, en ekki hefur verið upplýst hvernig hún tengdist bin Laden. Ein af eiginkonum bin Laden, dóttir hans og átta eða níu börn til viðbótar voru í húsinu og lifðu af skotbardagann. Dóttirin, sem er tólf eða þrettán ára, varð vitni að því þegar faðir hennar var skotinn til bana. Eiginkonan, sem er jemenskur ríkisborgari, sagði fjölskylduna hafa flutt í húsið fyrir nokkrum mánuðum. Talsmaður pakistönsku leyniþjónustunnar fullyrti að bandarísku hermennirnir hefðu tekið með sér einn fanga. Mögulega hefðu þeir ætlað að taka fleiri, en ekki getað það þar sem ein af þyrlunum sem þeir komu með bilaði. Flugmenn þyrlunnar náðu að lenda henni og sprengdu hana í loft upp á jörðu niðri. Fréttavefur BBC hefur eftir heimildum að bandarísku sérsveitarmennirnir hafi haft á brott með sér harða diska sem sérfræðingar bandarísku leyniþjónustunnar CIA séu nú að rannsaka. Bandarísk stjórnvöld settu 25 milljónir Bandaríkjadala til höfuðs bin Laden. Ekki hafði í gær verið upplýst hvort verðlaunaféð hafði verið greitt út.
Tengdar fréttir Fimm handteknir við Sellafield Fimm menn voru handteknir við kjarnorkuverið Sellafield í Bretlandi á mánudag grunaðir um að hafa ætlað að fremja hryðjuverk. Samkvæmt heimildum AP-fréttaveitunnar eru mennirnir allir á þrítugsaldri og frá London, en þeir munu vera ættaðir frá Asíu. 4. maí 2011 05:30 Mest lesið „Ekki skemmtilegt að koma svona til baka fyrsta vinnudag eftir sumarfrí“ Innlent Sterkar vísbendingar um falsboð Innlent Hörður Torfason biður Samtökin 78 afsökunar Innlent Ferðamennirnir ófundnir Innlent Fundu tóman bílaleigubíl og ræsa út leitarhunda Innlent Margir urðu brekkunni að bráð Innlent Sendu skilaboð á Neyðarlínuna en enginn fundist á svæðinu Innlent Ríkið komið um borð í milljarðaverkefni í Eyjafirði Innlent Konur skipuleggi sig oft í marga mánuði áður en þær koma Innlent Óvíst hvort ferðamennirnir séu á yfirgefna bílaleigubílnum Innlent Fleiri fréttir Harris velur ríkisstjóra Minnesota sem varaforsetaefni Slítur þingi eftir að forsætisráðherrann flúði Hefur sakamálarannsókn á stjórnarandstöðunni Harris orðin frambjóðandi demókrata og kynnir varaforsetaefni sitt Viðbúnaður aukinn vegna mögulegra átaka milli Íran og Ísrael Níu starfsmenn UNRWA reknir vegna aðildar að árásunum 7. október Kennedy yngri losaði sig við bjarnarhúnshræ í Central Park Ræddu falsfréttir og samfélagsmiðla á neyðarfundi Segir af sér og flýr land Minnst níutíu mótmælendur drepnir í Bangladess Starmer heldur neyðarfund vegna óeirðanna Báru eld að miðstöð fyrir hælisleitendur Tók á móti fyrstu F-16 þotunum Tók þátt í mótmælum þrátt fyrir hótun Maduro um handtöku Tugir hægriöfgamanna handteknir í óeirðum í Bretlandi Hvetja vestræna borgara til að koma sér frá Líbanon Trump bakkar frá samkomulagi um kappræður Ósáttir við að vera vísað frá Rússlandi gegn vilja sínum Hætt við samkomulag við höfuðpaur hryðjuverkanna 11. september „Skrýtinn“ höggstaður á Trump sem snýr sér að kynþætti Harris Enn einar óeirðirnar í Bretlandi í kjölfar hnífaárásarinnar Handtekin nokkrum dögum eftir að hún sagði af sér Gangast loksins við leyniþjónustufólki eftir fangaskiptin Segir Kim telja að hægt sé að semja við Trump Vildu að Navalní yrði hluti af fangaskiptunum sögulegu 550 handteknir í tengslum við ólöglegan klámhring á Taívan Lést af völdum sprengju sem var falin fyrir tveimur mánuðum Leiðtogi Hezbollah boðar „nýjan fasa“ eftir að farið var yfir „rauðar línur“ Blinken segir González réttkjörinn forseta en Maduro situr sem fastast Umfangsmestu fangaskipti frá tímum kalda stríðsins Sjá meira
Fimm handteknir við Sellafield Fimm menn voru handteknir við kjarnorkuverið Sellafield í Bretlandi á mánudag grunaðir um að hafa ætlað að fremja hryðjuverk. Samkvæmt heimildum AP-fréttaveitunnar eru mennirnir allir á þrítugsaldri og frá London, en þeir munu vera ættaðir frá Asíu. 4. maí 2011 05:30