Erlent

Venja á börn af pela fyrir 1 árs

Drekki börn úr pela til tveggja ára aldurs gætu þau orðið of feit fyrir fimm ára aldurinn.
Drekki börn úr pela til tveggja ára aldurs gætu þau orðið of feit fyrir fimm ára aldurinn.
Börn sem drekka úr pela til tveggja ára aldurs og lengur eru í meiri hættu á að eiga við offitu að stríða áður en skólaaldri er náð.

Þetta eru niðurstöður bandarískrar könnunar sem náði til sjö þúsund barna. Ástæðan er sú að börnin innbyrða fleiri kaloríur en þau þurfa úr pela. Foreldrar nota pelann ekki bara við þorsta heldur einnig til að róa börnin.

Sérfræðingarnir sem unnu að könnuninni mæla með því að foreldrar kenni börnum að nota stútkönnu eða glas frá sex mánaða aldri og hætti alfarið að gefa pela fyrir eins árs aldur.- rat




Fleiri fréttir

Sjá meira


×